Aðeins þrjú kisukrútt eftir af þessum yndislegu karakterum.
Þau eru síamsblandaðir, þriggja mánaða, fædd 8. maí 2010.
Þeir eru hundavanir og leika við fleiri kisuættingja og börn á heimilinu og auðvitað löngu kassavanir.
Við eigum mömmuna og ömmu og erum í sambandi við fleiri ættingja þeirra og getum hiklaust mælt með eiginleikum þeirra og skemmtilegum karakterum. Þeir eru líka sérstaklega mjúkir á feldinn, með stór falleg augu og "tala" hátt. :-)
Systurnar fögru sem við köllum stundum Snúllu og Dúllu :-)
Og ljúfi strákurinn hann Snáði með fallega síamsvöxtinn.
Þau eru auðvitað forvitin eins og kisum ber og bjóða gjarnan fram "aðstoð sína" við ýmis verkefni á heimilinu.
Það getur verið mjög skemmtilegt að leika við stóra hundinn á bænum og hann er að læra tökin á þessu :-)
Dúllan litla með gráu tærnar, svo sæt og ljúf og leggur sig gjarnan sem næst manni ... ef hún er ekki upptekin við að hasast í hundinum ;-)
Snúlla litla Snotra er minnst og kallar hátt og mikið ef hún uppgötvar allt í einu að hún er ein í herbergi og kemur síðan hlaupandi á fleygiferð til okkar hahaha
Hún þarf mikla athygli og leggur sig yfirleitt hjá einhverjum, hvort sem það er manneskja, kisa eða hundurinn.
Snáðinn er stærstur enda strákurinn í hópnum. Hann sleikir mann mikið og er skemmtilegur fjörkálfur :-)
Við þurfum að koma þeim á ný góð heimili sem allra fyrst. Ef þið hafið áhuga, tíma og getu til að bæta svona krúsufélaga á heimilið, hringið í Ragnhildir í síma 694-3153, við erum búsett í Hafnarfirði.
No comments:
Post a Comment