Friday, August 6, 2010

Nú varstu heppinn! ennþá til krútt hjá Röggu :-)

Yndislega skemmtilegir kettlingar leita að nýju góðu heimili. Þeir eru alveg tilbúnir að flytja að heiman, auðvitað löngu kassavanir, ljúfir, kelnir, fjörugir, fallegir og miklir karakterar :-)


Vantar þig góðan vin?
eða aðstoð við tölvuvinnsluna? ...

eða hjálp með þvottinn? 

Kannski vantar þig einhvern til að sjá um hárið?

ljúfan vin fyrir hundinn þinn?

eða mjúkan malandi uppeldisfélaga fyrir sólargeislann í lífi þínu ?

Eða bara fjör á heimilið??

Eða falleg rólegheit? 

Það er líka nauðsynlegt að hafa aðstoð við að leysa úr lífsins flækjum.

Eða vantar þig bara nýjan fjölskyldumeðlim sem gerir allt þetta og gefur hlý knús að auki?
ég á ennþá til svona dásemdareintak.

Hringdu bara í gemsann minn 694-3153 ef þú hefur aðstöðu, tíma og hlýju fyrir svona dýrmætan vin :-)

1 comment:

Sigrún Grindjánastelpa said...

Hver mundi ekki falla fyrir þessari fallegu frásögn þinni af þessum yndislegu ljúflingum :)

Kisuknúskveðjur
Sigrún